Uppbygging í uppnámi

Fosshótelsturninn á Höfðatorgi. Hótelið varð það stærsta á Íslandi í …
Fosshótelsturninn á Höfðatorgi. Hótelið varð það stærsta á Íslandi í herbergjum talið þegar það var opnað sumarið 2015. mbl.is/Baldur Arnarson

Stjórnendur Íslandshótela munu endurskoða áform um uppbyggingu hótela í Reykjavík og á landsbyggðinni ef virðisaukaskattur hækkar. Kostnaður við umrædd verkefni hleypur á milljörðum króna.

Meðal þeirra eru áform um stækkun Grand hótels og nýtt hótel á lóð Sjallans. Ólafur Torfason, stofnandi Íslandshótela, segir fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu í 24% ógna rekstri margra hótela, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag.

„Áform okkar eru í uppnámi vegna boðaðra breytinga á virðisaukaskatti. Það er mikil óvissa í greininni, sérstaklega úti á landi. Fyrirtækin hafa þurft að takast á við hækkuð laun og styrkingu krónunnar og eiga nú yfir höfði sér yfir 10 prósentustiga hækkun virðisaukaskatts. Það er viðbúið að þetta muni hafa áhrif til samdráttar á afkomu hótela. Reksturinn getur ekki tekið á sig slíka hækkun,“ segir Ólafur en Íslandshótel reka 17 hótel.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert