Eldur í bifreið á Akureyri

Kalla þurfti til slökkvilið, en vel gekk að ráða niðurlögum …
Kalla þurfti til slökkvilið, en vel gekk að ráða niðurlögum eldsins. mbl.is/Árni Sæberg

Eldur kviknaði í vélarrúmi bíls við verslun Ak-inn á Hörgárbraut á Akureyri upp úr sexleytinu. Bíllinn var kyrrstæður gatnamótum á rauðu ljósi þegar eldurinn kviknaði. 

Slökkvilið Akureyrar var kallað út og tók um korter að ráða niðurlögum eldsins. Ekki er enn vitað hvernig eldurinn kviknaði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert