Fyrirsæta á níræðisaldri

Ragnar sinnir fyrirsætustörfum.
Ragnar sinnir fyrirsætustörfum.

„Ég geri ótrúlegustu hluti. Verkefnin eru þannig að alltaf dettur eitthvað skemmtilegt inn,“ segir Ragnar Bjarnason söngvari.

Um helgina birtist í Morgunblaðinu auglýsing frá Verslun Guðsteins Eyjólfssonar þar sem Ragnar er fyrirsæta, klæddur í vönduð föt eins og verslunin er þekkt fyrir að bjóða. Auglýsingin hefur vakið athygli, en Ragnar er orðinn 82ja ára þótt hann beri þess ekki svip, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Yfirskrift auglýsingarinnar er Flottur jakki, en svo heitir einmitt lag sem Ragnar söng fyrir nokkrum árum. Því má segja að hér sé allt í stíl: það er föt, lag og maður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert