Sinueldur á Selfossi

Brunavarnir Árnsessýslu átti ekki í vandræðum með sinubrunann.
Brunavarnir Árnsessýslu átti ekki í vandræðum með sinubrunann. Ljósmynd /Brunavarnir Suðurnesja

Eldur kviknaði í sinu síðdegis á opnu svæði hjá íþróttavellinum við Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi. Tíu slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu mættu á vettvang í snatri og slökktu eldinn greiðlega. 

Samkvæmt upplýsingum frá brunavörnum Árnessýslu var mjög líklega um íkveikju að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert