Stendur ekki undir markmiði laga

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stendur ekki undir því markmiði laga um heilbrigðisþjónustu að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Meginástæðurnar eru vankantar á skipulagi í heilbrigðiskerfinu, takmarkaðar fjárveitingar til Heilsugæslunnar og skortur á aðhaldi.

Þetta kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Afleiðingarnar séu heft aðgengi almennings að þjónustu Heilsugæslunnar sem m.a. veldur því að fólk leitar á bráðamóttöku Landspítala með erindi sem Heilsugæslan getur leyst, segir í frétt á vef Ríkisendurskoðunar.

Að mati Ríkisendurskoðunar hefur stýring fjárveitinga innan heilbrigðiskerfisins ekki stuðl­­að að því að gera Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að fyrsta viðkomu­stað­ sjúklinga. Á tíma­bilinu 2007–16 juk­ust fjár­fram­lög til hennar einungis um 3% að raun­virði þótt íbúum svæðisins fjölg­aði um 11%. Á sama tíma jukust út­gjöld vegna sér­greina­lækn­inga um 57% að raunvirði,“ segir í fréttinni.

Ríkisendurskoðun beinir því m.a. til Heilsugæslunnar að auka eftirlit með þjónustu og skilvirkni þeirra fimmtán heilsugæslustöðva sem reknar eru á höfuðborgarsvæðinu.

Fylgjast þarf betur en nú er gert með biðtíma notenda eftir þjónustu einstakra stöðva og afköstum þeirra. Í nóvember 2016 fengu innan við helmingur þeirra sem leituðu til Heilsugæslunnar tíma hjá lækni innan tveggja daga þótt stefnt sé að því að 85% fái tíma innan þeirra tímamarka. Velferðarráðuneyti er einnig hvatt til að skýra betur hlutverk þjónustuaðila í heilbrigðiskerfinu og huga að árangri og skilvirkni með markvissri aðgangsstýringu. Mikilvægt er að þjónusta sé jafnan veitt á réttu þjónustustigi og að ríkið kaupi ekki dýrari heilsugæsluþjónustu en heilsugæslan getur sjálf veitt.

Fjölga þarf heimilislæknum.
Fjölga þarf heimilislæknum. mbl.is/Golli

Heilsugæslan og velferðarráðuneytið eru hvött til að kanna möguleika til þess að fjölga nemum í heimilislækningum og heilsugæsluhjúkrun en á Íslandi eru 25 heimilislæknar á aldrinum 35-45 ára en 64 á aldrinum 61-70 ára.

Því er einnig bent til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að kanna innleiðingu teymisvinnu til að bregðast við takmarkaðri þjónustu stöðvanna og sporna við hugsanlegum hagsmunaárekstrum starfsfólks. Velferðarráðuneyti er jafnframt hvatt til að greina hugsanlegan umboðsvanda í heilbrigðiskerfinu til að koma í veg fyrir að sparnaður á einu stigi leiði til aukins kostnaðar á öðru stigi. Einnig telur Ríkisendurskoðun nauðsynlegt að velferðarráðuneyti leitist við að leysa langvarandi samskipta- og stjórnunarvanda innan yfirstjórnar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert