Fangi lést úr vökvaskorti

David Clarke, yfirmaður lögreglunnar í Milwaukee.
David Clarke, yfirmaður lögreglunnar í Milwaukee. AFP

Fangi í Milwaukee í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna, sem glímdi við andleg veikindi, lést úr „bráðum vökvaskorti“ eftir að starfsfólk fangelsisins í bandarísku borginni meinaði honum um vatn þar sem hann sat í einangrunarklefa í sjö daga. Þetta kom fram í vitnisburði dómstóla í vikunni.

Fanginn, hinn 38 ára gamli Terril Thomas, lést 24. apríl í fyrra en fyrst núna hefur verið greint frá þeim aðstæðum sem hann lifði við síðustu daga hans á lífi. Fangaverðir synjuðu Thomas vísvitandi um vatn í refsingarskyni samkvæmt niðurstöðum réttarrannsóknar.

Thomas, sem var handtekinn grunaður um að hafa skotið mann og hleypt af fleiri skotum í spilavíti, er sagður hafa hagað sér óeirðarlega við upphaf fangelsisvistarinnar og var hann því færður í einangrun, sem fjölskylda hans segir jafngilda pyndingu. Þar sem Thomas virtist ekki fær um að halda ró sinni, brugðu fangelsisyfirvöld á það ráð að skrúfa fyrir vatnsrennsli í vask og klósett í litlum klefa fangans.

Fangar sem einnig eru vistaðir í fangelsinu, og fjölmiðillinn Journal Sentinel í Milwaukee ræddi við, segja að Thomas hafi verið mjög kvalinn síðustu daga ævi sinnar og hafi þrábeðið um að fá vatn. Hann missti 16 kíló og var orðinn mjög veikburða þegar hann loks lést á gólfi fangaklefans þar sem hann hafði enga dýnu til að sofa á.

Í ljósi alvarleika málsins hafa saksóknarar beðið sex kviðdómara um að taka ákvörðun um hvort leggja skuli fram kæru vegna málsins.

Andlát Thomas hefur valdið miklum ágreiningi í garð hins mjög svo íhaldssama David Clarke, yfirlögregluþjóns í Milwaukee, sem gengur um með kúrekahatt og tók virkan þátt  sem stuðningsmaður Donalds Trump í kosningabaráttu hans að því er segir í frétt AFP. Samkvæmt Journal Sentinel er Clarke sagður hafa reiðst mikið vegna málsins og hann hafi til að mynda hótað dánardómstjóra í Milwaukee sem hefur skilgreint dánarorsök Thomas sem morð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert