Ólafía aðstoðarmaður Benedikts

Ólafía Rafnsdóttir.
Ólafía Rafnsdóttir.

Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrrverandi formaður VR, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjármála- og efnahagsráðherra. Hún hefur störf 2. maí.

Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. 

Hún er annar aðstoðarmaður Benedikts en Gylfi Ólafsson hefur aðstoðað Benedikt frá því í janúar.

Ólafía var formaður VR 2013-2017. Frá 2014-2017 var hún varaformaður Landssambands íslenskra verslunarmanna og jafnframt fyrsti varaforseti Alþýðusambands Íslands. Áður starfaði Ólafía m.a. sem framkvæmdastjóri hjá mannauðssviði 365 miðla, deildarstjóri innheimtudeildar Tals, þjónustustjóri Islandia Internet og hjá VR. 

Ólafía hefur fjölbreytta reynslu af nefndar- og félagsstörfum. Hún hefur t.a.m. gegnt stjórnarformennsku hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar, setið í miðstjórn ASÍ og verið formaður í vinnumarkaðsnefnd og Jafnréttis- og fjölskyldunefnd. Þá hefur Ólafía starfað sem kosningastjóri. m.a. fyrir forsetaframboð Ólafs Ragnars Grímssonar árið 1996 og 2012. Þá var hún kosningastjóri Árna Páls Árnasonar þegar hann bauð sig fram til formanns Samfylkingarinnar 2013.

Ólafía lauk MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2012, námi í mannauðsstjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2005 og verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við sömu stofnun árið 2004.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert