Ragnheiður Ríkharðs í stjórn RÚV

Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur verið kjörin í stjórn RÚV.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur verið kjörin í stjórn RÚV. mbl.is/Golli

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Brynjólfur Stefánsson, Jón Jónsson, Kristín María Birgisdóttir og Stefán Vagn Stefánsson koma ný inn í stjórn RÚV á þessu ári, en kosning fór fram á Alþingi í dag um níu manna stjórn RÚV og varamenn þeirra til næsta árs.

Til áframhaldandi setu voru kosin þau Friðrik Rafnsson, Jón Ólafsson, Lára Hanna Einarsdóttir  og Mörður Árnason.

Varamenn stjórnar Ríkisútvarpsins að þessu sinni verða þau Sjöfn Þórðardóttir, sem átti sæti í stjórninni á síðasta ári, auk þeirra Péturs Gunnarssonar og Árna Gunnarssonar sem gegndu embætti varamanns. Ný koma hins vegar inn þau Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, Eva Hrönn Jónsdóttir, Björn Ólafsson, Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, Andrea Hjálmsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert