Það er greiðfært á Suður- og Vesturlandi. Á Vestfjörðum er víðast greiðfært. Krapi er á Hrafnseyrarheiði og í Trostansfirði en þæfingur á Dynjandisheiði. Þoka er á fjallvegum á sunnanverðum fjörðunum.
Vegir á Norðurlandi eru víðast auðir. Greiðfært er á Austur- og Suðausturlandi. Hálka er á Mjóafjarðarheiði.