Síðuskóli sigraði í Skólahreysti

Síðuskóli fagnar sigrinum í kvöld.
Síðuskóli fagnar sigrinum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Síðuskóli á Akureyri í sigraði Skólahreysti en úrslitakeppnin fór fram í kvöld. Í öðru sæti varð Lindaskóli í Kópavogi og þriðja sæti varð Laugalækjarskóli í Reykjavík. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu í Ríkisútvarpinu.

Tólf skólar sem komust úr riðlakeppninni tókust á í kvöld. Keppnin fór fram í Laugardalshöll og og fylltu stuðningssveitir skólanna höllina.

Skólarnir tólf sem kepptu til úrslita í kvöld voru: Brúarásskóli, Síðuskóli, Varmahlíðarskóli, Holtaskóli, Foldaskóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, Laugalækjarskóli, Lindaskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur og Grunnskólinn í Stykkishólmi, Brekkuskóli og Stóru-Vogaskóli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert