Tekinn á 144 km hraða

Kirkjubæjarklaustur
Kirkjubæjarklaustur Mats Wibe Lund

Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði ökumann sem ók á 144 km hraða í Eldhrauni í gærkvöldi. Leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Að sögn varðstjóra greiddi ökumaðurinn sektina á staðnum, 67.500 krónur, en hann var einnig ansi nálægt því að vera sviptur ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert