Flugvélin hefur verið fjarlægð

Farþegar yfirgefa flugvél Primera Air í dag.
Farþegar yfirgefa flugvél Primera Air í dag. Ljósmynd/Margrét Eiríksdóttir

Flugvél flugfélagsins Primera Air, sem lenti utan flugbrautar í lendingu á Keflavíkurflugvelli, hefur verðið dregin upp að flugstöðinni og verður flugbrautin opnuð aftur innan skamms. Flugbrautin var lokuð á meðan farþegar voru fluttir frá borði og önnur flugbraut, sem verið hefur lokuð vegna framkvæmda, tekin tímabundið í notkun á meðan.

Þetta segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi ISAVIA, í samtali við mbl.is. Óhappið hafði áhrif á um 5-6 flugvélar. Tveir flugvélar sem ætluðu að lenda á Keflavíkurflugvelli ákváðu að fljúga þess í stað til Skotlands, þar á meðal flugvél Wizzair sem kom frá Póllandi, og ein lenti á Reykjavíkurflugvelli. Flugvélar frá Keflavíkurflugvelli tóku á loft af flugbrautinni sem opnuð var tímabundið. Farþegar með þeim urðu fyrir töfum.

Til stóð að koma flugvél Primera Air upp á flugbrautina fyrir myrkur en að sögn Guðna tók það aðeins lengri tíma en gert var ráð fyrir. 

Tilkynning frá Isavia vegna slyssins:

Um kl. 17:20 í dag rann flugvél frá flugfélaginu Primera Air út af brautarenda brautar 19 í lendingu á Keflavíkurflugvelli. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir á flugvélinni sjálfri. Ekki er ljóst hvað olli þessu óhappi en Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar nú atvikið. Vegna óhappsins voru engin flugtök eða lendingar á meðan verið var hleypa farþegum frá borði og unnið var að því að fjarlægja vélina sjálfa af brautarenda. Vegna malbikunarframkvæmda er hin brautin á flugvellinum, braut 10/28 lokuð. Þær flugvélar sem áætluðu að lenda á Keflavíkurflugvelli strax eftir atvikið ákváðu að lenda annarsstaðar, tvær fóru til Skotlands og ein lenti í Reykjavík. Flugvélar og farþegar sem áttu að fara í loftið frá Keflavíkurflugvelli eftir óhappið urðu fyrir töfum. Allir farþegar flugvélarinnar sem lenti í óphappinu voru fluttir frá borði og í flugstöðina rúmlega klukkustund eftir atvikið og var þeim boðin áfallahjálp af Rauða krossi Íslands.

Strax var undirbúin tímabundin opnun á braut 10/28 og hefur hún nú verið opnuð fyrir flugtök og hafa nú allar lagt af stað á sinn áfangastað. Þá hefur vélin verið fjarlægð af brautarenda flugbrautar 01/19 og innan skamms verður unnt að opna flugbrautina aftur.

Við þessa röskun hafa orðið tafir á flugi og eins hefur flugum verið aflýst. Farþegar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við flugfélag sitt varðandi nánari upplýsingar.

Allir farþegar sem voru í flugvél Primera Air sem lenti í óhappinu eiga að hafa fengið viðeigandi aðstoð og upplýsingar. Frekari upplýsingar verða veittar af flugfélaginu sjálfu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert