Nokkuð um innbrot í bíla

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.

Lögreglan ítrekar þetta í tilkynningu, því nokkuð hafi verið um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu, þ.e.a.s. í Hlíðunum og í nágrenni Grandagarðs, en tilkynnt hefur verið um átta innbrot í bíla á þessum svæðum undanfarna daga.

Lögreglan segir í tilkynningu, að þeir sem kunni að búa yfir upplýsingum um þessi innbrot, sama hversu lítilfjörlegar þær kunni að virðast, séu beðnir um að hafa samband í gegnum Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða netfangið abending@lrh.is

„Hér er m.a. átt við lýsingu á mönnum og bifreiðum en gott er að skrifa slíkt hjá sér ef fólk tekur eftir einhverju óvenjulegu í sínu nánasta umhverfi. Sama gildir um bílnúmer en slíkar upplýsingar geta komið lögreglu á sporið,“ segir lögreglan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert