Nýtt alhliða íþróttahús í Grafarvogi

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, …
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Egilshallar og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis ásamt fulltrúum og íþróttafólki frá Fjölni tóku skóflustunguna Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Fyrsta skóflustunga að nýju alhliða íþróttahúsi við Egilshöll var tekin í dag. Húsið rúmar tvo handbolta- og körfuboltavelli en þar fá körfuknattleiks- og handboltadeildir æfinga- og keppnisaðstöðu, Borgarholtsskóli fær aðstöðu fyrir afreksíþróttabraut ásamt öðru íþróttastarfi.

Með hinu nýja alhliða íþróttahúsi, sem verður 2.500 fermetrar að stærð, er verið að bæta og efla valkosti til íþróttaiðkunar í Egilshöll og efla hið fjölbreytta starf Fjölnis og annarra íþróttafélaga. Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði tekin í notkun í byrjun næsta árs, að því er segir á vef borgarinnar.

Fjölnir er þegar með fimleikahús, karateaðstöðu, knatthús og   fótboltavelli utanhúss  ásamt skrifstofu- og félagsaðstöðu. Að mati forsvarsmanna Fjölnis er verið að stíga stórt skref í framtíðaruppbyggingu félagsins í Egilshöll með hinu nýja húsi. Reykjavíkurborg leigir meirihluta tíma í hina nýja húsi fyrir fjölbreytt íþróttastarf Fjölnis og fleiri félaga.

Reginn byggir íþróttahúsið og mun einnig sjá um rekstur þess.
Reginn byggir íþróttahúsið og mun einnig sjá um rekstur þess.

Kostnaðaráætlun byggingarinnar nemur um 780 milljónum króna. Reginn byggir íþróttahúsið og mun einnig sjá um rekstur þess. Félagið mun afla hluta nauðsynlegra leigutekna vegna fjárfestingarinnar frá þriðja aðila.  Arkitekt hússins eru Alark arkitektar og verkfræðihönnun og verkefnisstjórn annaðist Verkís hf.

Reginn og Fjölnir hafa sammælst um stofnun rekstrarfélags með það að markmiði að tryggja afkomu hins nýja íþróttahúss. Hluta tekna verður varið til að efla almenna íþróttastarfsemi í Egilshöll og starfsemi Fjölnis. Ennfremur verður Fjölnir gerður sýnilegri í húsinu með tilfærslu á skrifstofu og félagsaðstöðu félagsins í anddyri Egilshallar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert