Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur farið fram á það að beitt verði margfeldiskosningu, komi til kosninga á milli frambjóðenda til stjórnar HB Granda hf. á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 5. maí nk.
Tekist hefur verið á um stjórnarsæti í HB Granda síðustu ár og kröfðust lífeyrissjóðir margfeldiskosningar á síðasta aðalfundi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.