Málverk af Davíð Oddssyni afhjúpað

Eftir að verkið hafði verið afhjúpað þakkaði Davíð Oddsson Bjarna …
Eftir að verkið hafði verið afhjúpað þakkaði Davíð Oddsson Bjarna Benediktssyni góð orð í sinn garð og bar lof á listamanninn, Stephen Lárus, fyrir vel unnið verk. mbl.is/Árni Sæberg

Nýtt málverk af Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, og ritstjóra Morgunblaðsins, var afhjúpað í Valhöll í gær að viðstöddu fjölmenni. Það voru sonardætur Davíðs, Ástríður og Dagný Þorsteinsdætur, sem afhjúpuðu málverkið með aðstoð afa síns. Sjálfstæðisflokkurinn fékk Stephen Lárus, einn fremsta portrettmálara landsins, til þess að mála myndina af Davíð og luku gestir miklu lofsorði á listaverkið, sem „þótti bæði fanga svip hans og skaphöfn, en jafnframt bregða upp svipmyndum af sögulegum ferli hans á hugvitsamlegan hátt,“ eins og segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokkins og forsætisráðherra, sagði við þetta tækifæri að allir þekktu þá umbyltingu á þjóðlífi og hugarfari, sem Davíð hefði áorkað í forystustörfum fyrir land og þjóð, og rakti feril hans stuttlega. „Davíð er sigursælasti forystumaður flokksins frá upphafi, leiddi flokkinn þrisvar sinnum í röð til sigurs í borgarstjórnarkosningum og fjórum sinnum í röð til sigurs í alþingiskosningum. Hann er jafnframt sá maður, sem lengst allra hefur gegnt embætti forsætisráðherra Íslands, í rúm 13 ár samfellt. Það verður seint jafnað.“

Hefð er fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn láti mála myndir af fyrrverandi formönnum flokksins og eru þær hafðar á heiðursstað í Bókastofu á jarðhæð Valhallar, höfuðstöðva flokksins.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti ávarp áður en myndin var …
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti ávarp áður en myndin var afhjúpuð. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sólveig Pétursdóttir og Stephen Lárus sem málaði myndina af Davíð.
Sólveig Pétursdóttir og Stephen Lárus sem málaði myndina af Davíð. Eggert Jóhannesson
Páll Magnússon og Hildur Sverrisdóttir heilsast.
Páll Magnússon og Hildur Sverrisdóttir heilsast. Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert