Vatn flæddi um öll gólf

Tilkynning barst um vatnsleka í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði skömmu fyrir klukkan ellefu í gærkvöld. Vatn hafði lekið úr þvottavél og flætt um öll gólf íbúðarinnar sem er um eitt hundrað fermetrar samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Slökkviliðsmenn voru að störfum í húsinu í um eina og hálfa klukkustund en ekki liggur fyrir hversu mikið tjón kann að hafa orðið vegna lekans.

Þá fór slökkviliðið í eitt útkall í nótt vegna elds í þremur ruslatunnum við Hverfisgötu í Reykjavík. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert