Um 350 íbúðir á lóð Heklu

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, skrifuðu …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um uppbygginguna. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Umtalsverð fjölgun íbúða og þjónustuhúsnæðis er fyrirhuguð við ofanverðan Laugaveg á athafnasvæði Heklu við Laugaveg og Brautarholt.  Gert er ráð fyrir að fjöldi íbúða á svæðinu geti verið 320 – 350 íbúðir.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um uppbygginguna og verður hún samstillt við fyrirhugaðan flutning höfuðstöðva Heklu í Suður-Mjódd, en unnið er að því hjá Reykjavíkurborg að gera þá lóð úthlutunarhæfa, að því er segir í tilkynningu á vef borgarinnar. 

Þá kemur fram, að nú standi yfir hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag svæðis meðfram samgöngu- og þróunarás við Laugaveg og sé niðurstöðu dómnefndar að vænta í næsta mánuði.  Að undangengnu forvali voru valin fimm teymi sem eru:

  • ASK arkitektar, Landmótun og Efla.
  • jvantspijker architects frá Hollandi.
  • Yrki arkitektar.
  • Henning Larsen Architects frá Danmörku og Batteríið arkitektar.
  • Björn Ólafs, Daníel Ólafsson, Gunnar P. Kristinsson og Birgir Ö. Jónsson.

Teymin skila gögnum 12. júní og dómnefnd er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en 29. júní nk.

„Í Aðalskipulagi Reykjavíkur er Laugavegur skilgreindur sem hluti af samgöngu- og þróunarás, en þarna mun hin nýja Borgarlína liggja.   Markmið aðalskipulags er að þétta byggð meðfram ás almenningssamgangna á milli miðborgar og lykil þróunarsvæða í austri.  Við endurskipulagningu svæða sem liggja við samgönguásinn á að þróa núverandi götur í borgargötur með sérakreinum fyrir almenningssamgöngur og hugað er sérstaklega að þéttingu byggðar í grennd við biðstöðvar.

Gert er ráð fyrir blandaðri byggð, íbúðabyggð og atvinnustarfsemi á svæðinu til framtíðar.  

Við uppbygginguna verða lögð til grundvallar markmið Reykjavíkurborgar um aukna hlutdeild leigumarkaðs á húsnæðismarkaði, blöndun byggðar á svæðinu og kauprétt vegna félagslegs húsnæðis og leiguíbúða. Jafnframt er skilyrði að hugsað sé um listskreytingar á svæðinu. Hekla hf. mun kosta vinnu við undirbúning og gerð deiliskipulagsbreytinga á reitnum ásamt Reykjavíkurborg,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert