Tugir veiðimanna óskráðir á báta

Fjöldi strandveiðibáta er nú við veiðar víða um landið. Samkvæmt …
Fjöldi strandveiðibáta er nú við veiðar víða um landið. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar eru tugir báta óskráðir. Myndin er úr safni. mbl.is/Gunnar Kristjánsson

Nokkur brögð hafa verið að því að lögskráningu á báta sé ábótavant. Að sögn Jóns Páls Ásgeirssonar, yfirstýrimanns á aðgerðasviði LHG, voru fjörutíu strandveiðibátar á sjó án lögskráningar klukkan átta í morgun.

Í gær var sama uppi á teningnum, aðgerðasvið LHG hafði samband hátt í fjörutíu báta vegna þess að lögskráning á þá var ófullnægjandi. Strandveiðitímabilið hófst á þriðjudaginn og voru í gær hátt í þrjú hundruð bátar á strandveiðum um hádegisbilið. Samkvæmt Landhelgisgæslunni voru þar af um 40 menn óskráðir á báta í gær og svipaður fjöldi í fyrradag. Þegar mbl.is heyrði í stjórnstöð gæslunnar í dag voru um 30 menn óskráðir.

Samkvæmt lögum um lögskráningu sjómanna segir skýrt að óheimilt sé að leggja skipi úr höfn nema allir skipverjar hafi verið lögskráðir í skiprúm. Landhelgisgæslan sinnir eftirliti með lögskráningu í íslenskum skipum og sé henni ábótavant ber að kæra það. Í lögunum segir ennfremur að við ítrekuð brot megi færa skip til hafnar og þau geti varðað sektum eða jafnvel fangelsi. Áður en kæra er gefin út fá skipstjórnendur svigrúm til leiðréttingar á lögskráningu, „stuttan tíma“ eins og segir í núgildandi lögum en var sólarhringur í eldri lögum.

Fréttin hefur verið leiðrétt í kjölfar breytingar á tilkynningu Landhelgisgæslunnar. 

Þar segir enn fremur að ekki þurfi að hafa mörg orð um mikilvægi þess að sjófarendur gæti þess að lögskráningin sé í lagi. Annmarkar á slíku geti haft afleiðingar, meðal annars þegar kemur að tryggingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert