„Ástandið er svart“

„Ástandið er svart,“ segir María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna '78, um atburði síðustu vikna í Tsjetsjeníu þar sem gróf mannréttindabrot gegn hommum hafa verið tilkynnt. Í dag boða samtökin til mótmæla fyrir utan rússneska sendiráðið vegna atburðanna.

María segir fjölskyldur samkynhneigðra karlmanna vera hvattar til að drepa þá vegna kynhneigðar sinnar og tilkynnt hefur verið um tilfelli þar sem það mun hafa gerst. Samtökin mótmæla fyrir utan rússneska sendiráðið þar sem Tsjetsjenía er sjálfstjórnarhérað inn rússneska sambandsríkisins.

mbl.is hitti Maríu fyrir utan sendiráðið í morgun en síðustu daga hafa samtökin verið þar með þögla viðveru til að vekja athygli á ástandinu.

Tilkynning frá samtökunum vegna mótmælanna:

Í rússneska sjálfsstjórnarlýðveldinu Tsjetsjeníu stendur yfir herferð til útrýmingar á hinsegin karlmönnum. Undanfarnar vikur hafa karlar sem grunaðir eru um samkynhneigð verið kerfisbundið sviptir frelsi, pyntaðir og drepnir. Settar hafa verið á laggirnar fangabúðir á minnst tveimur stöðum þar sem meintir hommar og tvíkynhneigðir karlar eru í haldi. Ástandið er slíkt að það þykir helst minna á aðför þriðja ríkisins gegn hinsegin fólki á tímum helfararinnar. Hinsegin samtökin Russian LGBT Network vinna hörðum höndum að því að koma fólki undan og sögur þolendanna eru hræðilegar.

Breska utanríkisráðuneytið hefur eftir traustum heimildum að leiðtogi Tsjetsjeníu, Ramzan Kadyrov, hafi einsett sér að útrýma hommum og tvíkynhneigðum körlum úr samfélaginu fyrir upphaf Ramadan þann 26. maí næstkomandi. Kadyrov og félagar neita staðfastlega sök, en hómófóbían sem þeir tjá í sömu andrá er ótrúleg. „Ef slíkt fólk væri til í Tsjetsjeníu þyrfti lögreglan ekki að hafa áhyggjur af því, því þeirra eigin ættingjar myndu senda það á stað þaðan sem það ætti ekki afturkvæmt,“ sagði talsmaður Kadyrovs í viðtali.

Þrátt fyrir háværar kröfur alþjóðasamfélagsins undafarinn mánuð hefur ástandið  hefur ástandið versnað og mannréttindabrotin halda áfram. Yfirvöld í Tsjetsjeníu hafa sýnt einbeittan brotavilja og hatur í garð hinsegin borgara sinna. Nú verða því aðrir að grípa inn í. Tryggja verður að óháð rannsókn á ástandinu fari fram og sækja þá sem fremja glæpi gegn hinsegin fólki til saka.

Frá miðvikudegi til föstudags munu Samtökin ’78 standa fyrir keðjustöðu við rússneska sendiráðið við Garðastræti kl. 12–17 þar sem fólk stendur stuttar vaktir til skiptis til að minna á alvarleika ástandsins. Á föstudaginn kl. 16 munum við fylkja liði á Suðurgötu 3, setja upp bleika þríhyrninga og ganga að rússneska sendiráðinu til að minna Rússa á skuldbindingar sínar á sviði mannréttindamála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert