Staða nemenda með fötlun verði tryggð

Fjölbrautaskólinn við Ármúla. Tryggja þarf stöðu allra nemenda með fötlun, …
Fjölbrautaskólinn við Ármúla. Tryggja þarf stöðu allra nemenda með fötlun, sem stunda nám á sérnámsbreutum við Fjölbrautarskólann í Ármúla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Þroskaþjálfafélagi Íslands (ÞÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma um sameiningu Tækniskólans og Fjölbrautaskólans við Ármúla (FÁ). www.fa.is

Tryggja þarf stöðu allra nemenda með fötlun, sem stunda nám á sérnámsbrautum við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Þroskaþjálfafélagi Íslands (ÞÍ), sem lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma um sameiningu Tækniskólans og Fjölbrautaskólans við Ármúla (FÁ).

Segir í yfirlýsingunni að verði áformin að veruleika telji félagið að tryggja verði að allir þroskaþjálfar og aðrir starfsmenn FÁ haldi störfum sínum og kjörum. „Mikilvægt sé að þessir nemendur geti áfram sótt nám sitt og fái þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert