Loka akrein á Miklubraut á morgun

Gamlar gangstéttarhellur á gangstíg meðfram Klambratúni hafa verið teknar upp. …
Gamlar gangstéttarhellur á gangstíg meðfram Klambratúni hafa verið teknar upp. Á morgun, mánudag,hefjast miklar framkvæmdir á vegkaflanum milli Rauðarárstígs og Miklubrautar. mbl.is/Golli

Framkvæmdir á Miklubraut við Klambratún hefjast á morgun, mánudag, en þá verður akreinum til vesturs (í átt að miðbænum) fækkað tímabundið frá Lönguhlíð að Rauðarárstíg. Einnig þarf tímabundið að færa biðstöðvar Strætó og þannig fellur biðstöð við Klambratún út á mánudag og verður bráðabirgðastöð sett upp við gatnamót Lönguhlíðar.

Þar sem umferðarþungi inn í miðborgina er mestur á morgnana má gera ráð fyrir töfum á í  morgunumferðinni á næstunni. Ökumenn eru hvattir til að gefa sér rýmri tíma en venjulega, sem og að sýna tillitssemi og aðgát við framkvæmdasvæðið, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Verkið felst í að bæta forgang strætó og almennt umferðaröryggi. Framkvæmdir hefjast að norðanverðu, eða Klambratúnsmegin, en þar verða aðskildir göngu- og hjólastígar, auk þess sem biðstöð strætó verður endurgerð og umhverfi við akbrautina gert vistlegra við lágan vegg sem kemur meðfram akbraut.

Forgangsrein strætó til austurs verður sunnan Miklubrautar meðfram húsagötu og biðstöð þar verður einnig endurnýjuð. Akrein frá Reykjahlíð beint út á Miklubraut verður aflögð og til að gera vistlegri stemningu og draga úr umferðarhraða verða gatnamót Reykjahlíðar og húsagötu við Miklubraut hellulögð í sama plani og aðliggjandi gangstéttar, segir í tilkynningu borgarinnar. Milli húsagötu og Miklubrautar kemur lágur hljóðdempandi steyptur veggur.

Á öllu framkvæmdasvæðinu verður götulýsing endurbætt eftir þörfum. Verkið er unnið í samvinnu við Vegagerðina og Veitur. Heildarkostnaður við framkvæmdina er um 350 milljónir króna. Hlutur Reykjavíkurborgar er um 170 milljónir.

Akreinum fækkað tímabundið á framkvæmdatíma

Á verktíma má gera ráð fyrir töfum á umferð vegna fækkunar akreina, en stefnt er að því að verkþáttum sem kalla á takmarkanir á umferð verði lokið í ágúst. Verkinu í heild á að ljúka í október.

Eins og áður segir verður lokað fyrir akrein til vesturs á mánudag og verða frekari lokanir kynntar sérstaklega. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert