„Hret í kortunum á miðvikudaginn“

Hlýindi helgarinnar fara hverfandi með vikunni.
Hlýindi helgarinnar fara hverfandi með vikunni. mbl.is/Golli

Hlýindi helgarinnar fara hverfandi með vikunni að sögn Haralds Eiríkssonar veðurfræðings hjá Veðurstofunni.

Búast má við rólegri vestanátt í dag og skýjuðu veðri en líklegast mun haldast þurrt út daginn. Hlýindin halda áfram í dag og á morgun og er spáð sól á Suðaustur- og Austurlandi en eftir það lækkar hitinn smám saman og er rigningarspá fyrir þriðjudagskvöldið.

„Það er hret í kortunum á miðvikudaginn á norðanverðu landinu. Slydda og snjókoma á heiðum,“ segir Haraldur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Hallmundur Kristinsson: Hret
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert