Mikil kraftur í kraumandi jörð

Kísilhóll.Þetta náttúruvætti myndaðist í sprengingu fyrir fáum árum. Fjær sést …
Kísilhóll.Þetta náttúruvætti myndaðist í sprengingu fyrir fáum árum. Fjær sést hár gufustrókur úr borholu sem þarna var tekin vegna orkunýtingar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Reginöflin á Reykjanesi hafa verið í ham að undanförnu og virkni á hverasvæðinu við Gunnuhver hefur að undanförnu verið með mesta móti.

Háir gufustrókar standa upp úr hverum og borholum á svæðinu og hefur krafturinn í þeim aukist talsvert síðustu mánuði, að sögn Eggerts Sólbergs Jónssonar, forstöðumanns jarðvangsins Reykjanes Geopark.

Hræringar þessar eru þó ekki taldar vera neinn váboði, segja jarðvísindamenn við Morgunblaðið og benda á að á hverasvæðum sé alvanalegt að kraftur aukist og þverri á víxl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert