„Alltaf til í þann samanburð“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

„Það er langt síðan ég hætti að nenna að svara nettröllum, jafnvel þótt þau detti inn á Alþingi.“ Á þessum orðum hefst færsla Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þingmanns Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, sem hann skrifar á Facebook.

Gerir hann þar að umfjöllunarefni gagnrýni Helga Bergmanns, varaþingmanns Pírata, á það sem Helgi sagði vera dræma mætingu Sigmundar á Alþingi.

„Ég ætla þó að gera smá undantekningu því frúin er að ergja sig á því að kunnuglegir hrekkjalómar séu að reyna að halda því fram að ég sinni ekki vinnunni. Hún er nefnilega orðin langþreytt á biðinni eftir að einhver skammi mig fyrir hið gagnstæða, þ.e. að vanrækja fjölskylduna,“ skrifar Sigmundur í framhaldinu.

„Henni fannst því fokið í flest skjól þegar ónefndur fréttamaður Vísis hafði eftir varaþingmanni Pírata að ég væri ekki nógu mikið í vinnunni og það daginn eftir að hún spurði hvort ég væri alveg búinn að gleyma að ég ætti fjölskyldu.“

Sundurlaus stjórnarandstaða

Lætur hann í kjölfarið fylgja pistil um starf sitt á Alþingi. Segist hann þar viðurkenna að það hendi stundum, „alla vega í mínu tilviki, að starfið feli í sér verkefni sem eru meira aðkallandi en að hlusta á umræðu um fundarstjórn forseta (eða að taka þátt í slíkum uppákomum).“

Og þó að áhugaverðir tímar séu í stjórnmálum hafi þingstörfin ekki endurspeglað það síðustu misseri, að sögn Sigmundar.

„Við stjórnvölinn er ríkisstjórn sem hefur einstaklega lítið fram að færa og hinum megin sundurlaus stjórnarandstaða sem veltir helst fyrir sér hvaða pólitísku leikatriði sé hægt að setja á svið þann daginn. Æsa sig yfir einhverju aukaatriði sem engu máli skiptir í umræðu um fundarstjórn forseta eða leggja fram ályktun um að þingmenn meirihlutans mæti ekki nógu vel á nefndarfundi (þótt sumir þeirra eigi að vera á tveimur nefndarfundum samtímis),“ skrifar Sigmundur.

„Getur vakið höfnunartilfinningu“

„Slík úrræði ætti að spara fyrir tilvik þar sem þeirra er raunverulega þörf. Hver er trúverðugleikinn þegar búið er að öskra um endalok lýðræðis af því formaður nefndar spurði stjórnarandstöðuþingmann í sakleysi sínu hvort hann teldi æskilegt að fresta máli?“

Að lokum segir hann að auðvitað þyki honum vænt um það ef „kollegar sem hafa ekki nóg að gera sakna manns. En það er samt ekki fallegt að skilja aðra út undan.

Hver man t.d. ekki eftir áfallinu sem tveir af brottföllnum þingmönnum Samfylkingarinnar urðu fyrir þegar ég tók mér þriggja daga frí með fjölskyldunni á síðasta kjörtímabili. Á meðan hverfa aðrir ráðherrar vikum saman án þess að vera saknað. Það hlýtur að vera leiðinlegt, getur jafnvel vakið höfnunartilfinningu,“ skrifar Sigmundur.

Fundirnir stundum langt frá Austurvelli

„Á þessu ári hef ég verið í vinnu sem þingmaður á hverjum einasta degi að frátöldum nýársdegi, páskadegi og öðrum degi páska. Á þingfundardögum mætir maður í þinghúsið eða á skrifstofuna nema maður sé á fundum eða í öðrum verkefnum annars staðar. Stundum eru þeir fundir annars staðar á landinu, langt frá Austurvelli. Þeir sem halda að starf þingmanns felist í að sitja allan daginn í sófunum í þinghúsinu eru ekki að vinna vinnuna sína.

Þótt það geti verið áhugavert að bera saman hversu lengi hver og einn situr í þinghúsinu er líklega réttara að bera saman þann árangur sem menn skila. Ég er alltaf til í þann samanburð við hvern sem er.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert