Atvinnurekandi segir fyrirtækjum mismunað með rútubílabanni í miðborginni

Borgin hefur sett strangar reglur um akstur stærri bíla í …
Borgin hefur sett strangar reglur um akstur stærri bíla í miðborginni. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Hallgrímur Lárusson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Snæland Grímsson, segir breytingar á reglum um akstur hópferðabifreiða í miðborginni fela í sér mismunun gagnvart fyrirtækjum.

„Þetta þýðir að þegar við sækjum 67 farþega út á Keflavíkurflugvöll munu þeir þurfa að arka frá Tollhúsinu í Aðalstrætið með allan sinn farangur og hafurtask og svo til baka á heimleiðinni. Það getur verið í janúar klukkan fjögur að morgni í norðangarra og hríð. Margir farþega okkar eru eldri Bandaríkjamenn. Hvernig eigum við að fara að þessu?“ spyr Hallgrímur í umfjöllun um rútubannið í Reykjavík í Morgunblaðinu í dag.

Hann segir óraunhæft að flytja farþega síðasta spölinn í leigubíl. Þeir séu jafnan með farangur og því megi miða við 2-3 farþega í leigubíl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert