Spyr út í sjálfstýrð farartæki

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þingmaður Pírata. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Píratinn Smári McCarthy hefur lagt fram fyrirspurn til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um sjálfstýrð farartæki.

Þar spyr hann hvort og þá hvenær ráðherra ætli að leggja fram lagafrumvarp um sjálfstýrðar bifreiðar og önnur ökutæki.

Einnig spyr hann hvort ráðherra hyggist leggja fram sambærilegt frumvarp um önnur sjálfstýrð farartæki, svo sem skip og flugvélar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert