Fluglest í Kringluna?

Hugmyndir að útliti á lestarstöðvum sem birtist í skýrslu Fluglestarinnar …
Hugmyndir að útliti á lestarstöðvum sem birtist í skýrslu Fluglestarinnar 2014. Úr skýrslu Fluglestarinnar

Framkvæmdastjóri  Fluglestarinnar  –  þróunarfélags,    Runólfur Ágústsson,   segir farið   að   skýrast hvaða   leið   henti best fyrir fluglest á      höfuðborgarsvæðinu.   

Nú   sé einkum  horft  til  leiðar  1,  sem  bjóði upp    á    tengingar    við    Vífilsstaði, Smáralind og Kringluna.

Runólfur   á   nú   í   viðræðum   við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að tengja fyrirhugaða fluglest við áformaða  borgarlínu.  Það  komi  til greina að hafa fleiri en eina millistöð fyrir  fluglestina.  Má  því  álykta  að horft sé til þess að tengja fluglestina við  fyrirhugaðar  biðstöðvar  borgarlínu við Smáralind og Kringlu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert