Guðrún Alda formaður stjórnar

Guðrún Alda Harðardóttir er formaður stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Guðrún Alda Harðardóttir er formaður stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra.

Guðrún Alda Harðardóttir, er nýskipaður formaður stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra skipaði stjórnina í dag. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra annast stjórn sjóðsins og gerir árlega tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra og er fjármagnaður með gjaldi sem lagður er á þá sem eru skattskyldir á aldrinum 16 – 70 ára. 

„Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagvista, mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.“ Þetta kemur fram í tilkynningu

Auk Guðrúnar Öldu sitja í stjórn Halldór Halldórsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sigurður Jónsson, tilnefndur af Landssambandi eldri borgara og Stella Kristín Víðisdóttir, tilnefnd af fjárlaganefnd Alþingis. 

Guðrún Alda er með doktorspróf í uppeldis og kennslufræðum frá Háskóla Íslands og starfar sem leikskólaráðgjafi við leikskólann Aðalþing í Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert