Hjólaði á bifreið í akstri

Ökumaðurinn og litla stúlkan voru flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Ökumaðurinn og litla stúlkan voru flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is/Helgi Bjarnason

Ökumaður fiskflutningabifreiðar ristarbrotnaði í vikunni þegar hann varð fyrir lyftara í Grindavík. Þá úlnliðsbrotnaði lítil stúlka þegar hún hjólaði á bifreið sem var í akstri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Slys ökumannsins varð með þeim hætti að hann fór út úr bifreiðinni og gekk fyrir framhorn hennar. Í sömu svifum bar lyftarann að og varð maðurinn fyrir honum. Hann féll til jarðar og var síðan fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að meiðslum hans.

Þá úlnliðsbrotnaði stúlkan þegar hún hjólaði á bifreið sem var í akstri. Auk úlnliðsbrotsins bólgnaði hún í andliti og fékk sár á hökuna við höggið. Hún var einnig flutt undir læknishendur á HSS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert