Mikið um þjófnað á Suðurnesjum

mbl.is/Þórður

Óvenju mörg þjófnaðarmál hafa komið á borð lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að því er fram kemur í tilkynningu frá embættinu. Í gær var tilkynnt innbrot í bílskúr þar sem munum að verðmæti hátt í 200 þúsund krónur var stolið. Um var að ræða fartölvur, batterísvél, topplyklasett og hjólatjakk. Þá var tilkynntur þjófnaður á handtösku úr bifreið. Í töskunni voru meðal annars seðlaveski og greiðslukort. Sá sem þar var að verki hirti einnig JBL-hátalara af mælaborði bílsins.

Þá voru tveir piltar staðnir að hnupli í Bónusverslun. Haft var samband við foreldra þeirra og barnavernd.

Loks var aðili staðinn að verki þar sem hann var að gera sig líklegan til að stela tveimur vodkaflöskum. Hann hafði áður verið staðinn að verki í vínbúðinni þegar hann stal tveimur eins lítra vodkaflöskum því það athæfi náðist á upptöku í öryggismyndavél.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert