Mistök ollu biluninni

Ferjan Baldur.
Ferjan Baldur.

Mistök við viðgerð á farþegaferjunni Baldri í morgun ollu því að ferjan varð vélarvana á milli lands og Vestmannaeyja á öðrum tímanum í dag. Þetta segir Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs. Skipið er nú komið aftur í gang og er á leið til Eyja. 

„Hitun í vél kom upp í skipinu á leið til Landeyjarhafnar fyrir hádegi í dag vegna óhreininda í kælikerfi en þegar gert var við það voru gerð smá mistök sem ollu þessu. En skipið er komið í gang núna og mun að mér skilst ná fullu afli,“ segir Gunnlaugur í samtali við mbl.is, en hann var sjálfur í ferjunni á leið til Landeyjahafnar.

Ferj­an varð vél­ar­vana norðan við Elliðaey, á milli lands og Vest­manna­eyja, en greint var fyrst frá því á Eyj­ar.net. Bald­ur fór af leið klukk­an 13:18 en Lóðsinn, drátt­ar­bát­ur frá Vest­manna­eyj­um, var kallaður til til aðstoðar. Kom þó ekki til þess að það þyrfti að draga ferjuna, þar sem hægt var að laga bilunina og koma skipinu aftur í gang. „En það er auðvitað aldrei gott þegar ferja er ekki með afl á siglingu,“ segir Gunnlaugur. 

Ferjan átti að fara frá Vest­manna­eyj­um klukkan 13:45 og frá Land­eyja­höfn klukkan 14:45, en ljóst er að seinkun verður á þeim ferðum. „Það er smá seinkun en við náum líklega að vinna hana upp á tveimur leggjum,“ segir Gunnlaugur að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert