Ráðstöfunum vegna fuglaflensu aflétt

Brandendur á flugi.
Brandendur á flugi. Ljósmynd/Andrés Skúlason

Starfshópur vegna fuglaflensu, sem í sitja sérfræðingar Matvælastofnunar, Háskóla Íslands og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum, telur nú litlar líkur á að alvarlegt afbrigði af fuglaflensu sé til staðar í villtum fuglum hér á landi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið felldi úr gildi í dag þær tímabundnu varúðarráðstafanir sem fyrirskipaðar voru að tillögu Matvælastofnunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

„Frá mars á þessu ári hafa borist 26 tilkynningar um samtals 54 dauða fugla. Ekki var í öllum tilvikum hægt að taka sýni vegna þess að hræin voru uppétin eða horfin þegar sýnatökumaður mætti á staðinn. Í einhverjum tilvikum var ekki talin ástæða til að taka sýni vegna vísbendingar um að viðkomandi fugl hafi slasast en hafi líklega ekki verið veikur. Sýni voru tekin úr 14 fuglum og hafa þau öll verið neikvæð. Auk þess bendir lítill fjöldi tilkynninga til þess að ekki hafi verið óeðlileg veikindi og dauðsföll í villtum fuglum,“ segir í tilkynningunni.

Til viðbótar voru tekin sýni úr 120 álftum sem voru nýkomnar til landsins og komu frá svæðum þar sem fuglaflensa hefur greinst. Þau sýni voru öll neikvæð. Sama niðurstaða fékkst úr 39 sýnum úr heiðargæsum. Sýnin voru tekin af fuglafræðingi frá Háskóla Íslands og allar rannsóknir fóru fram á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

„Fá tilfelli fuglaflensu hafa komið upp í Evrópu undanfarið. Komið er vor og hitastig fer hækkandi sem minnkar líkur á að fuglaflensuveirur, ef þær eru til staðar, geti lifað lengi í umhverfinu. Flestir farfuglar eru þegar komnir til landsins," segir í tilkynningunni.

„Með hliðsjón af þessum þáttum, sem nefndir eru hér, komst starfshópurinn að þeirra niðurstöðu að litlar líkur séu á að alvarlegt afbrigði af fuglaflensu sé til staðar í villtum fuglum hérlendis, þótt ekki sé hægt að útiloka það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert