Einn með 46 milljóna króna vinning

Einn fékk rúmar 46 milljónir króna í sinn hlut.
Einn fékk rúmar 46 milljónir króna í sinn hlut.

Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóútdrætti kvöldsins og fær hann 46,5 milljónir króna í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru 13, 20, 24, 33 og 34. Bónustalan var 39.

Einn var með fjórar réttar tölur og bónustöluna og fær hann vinning upp á rúmlega 560 þúsund krónur. Einn var með allar jókertölur kvöldsins og hlýtur hann tvær milljónir króna fyrir vikið. 

Vinningsmiðinn var keyptur á vefnum lotto.is. Miðinn með bónusvinningnum var keyptur hjá Knattspyrnudeild Fram í Safamýri. Sá sem var með jókerinn keypti miðann í Skalla í Hraunbæ í Reykjavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert