Áfram fylgst náið með ofninum

Kísilmálmverksmiðja United Silicon í Helguvík.
Kísilmálmverksmiðja United Silicon í Helguvík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Breytingarnar sem hafa verið gerðar eiga meðal annars að skila því að óæskilegar lofttegundir eyðist frekar og skili sér síður út í andrúmsloftið,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, sviðstjóri á Umhverfisstofnun. Stefnt er að gang­setn­ingu regnbogaofns kís­il­mál­verk­smiðju United Silicon hf. í Helgu­vík í dag kl. 16, með samþykki Um­hverf­is­stofn­un­ar.

Úrbætur hafa verið gerðar á ofninum auk ýmissa annarra framkvæmda sem farið var í, að sögn United Silicon hf., sem fór meðal annars eftir úttekt norska ráðgjafar­fyr­ir­tæk­isins Multikonsult. Fyrirtækið mun halda áfram að starfa með United Silicon hf. á meðan ofninn er að komast á full afköst.

Þurfa að senda daglega inn afrit af afli ofnsins

Umhverfisstofnun fylgist náið með gangi mála og metur árangur úrbótanna. Fyrirtækið þarf meðal annars að senda daglega inn afrit sem sýnir afl ofnsins, sýni verða tekin til greiningar og fylgst verður með kvörtunum um lyktarmengun, að sögn Sigrúnar. 

Ofn­inn hef­ur ekki verið í gangi frá því að eld­ur kom upp í kís­il­málm­verk­smiðjunni þriðju­dag­inn 18. apríl. Viku síðar sendi Um­hverf­is­stofn­un frá sér til­kynn­ingu um að stofn­un­in hefði stöðvað rekst­ur verk­smiðjunn­ar vegna ít­rekaðrar lykt­ar­meng­un­ar og að ofn­inn yrði ekki ræst­ur aft­ur nema að gefnu leyfi og í sam­ráði við stofn­un­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert