Betur fór en á horfðist þegar eldur kviknaði í dráttarvél á bænum Hestheimum í Rangárvallasýslu um klukkan 13 í dag. Ökumaðurinn varð eldsins var og var fljótur að koma sér út og hringja á slökkviliðið. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, að sögn Brunavarna Rangárvallasýslu.
Dráttarvélin varð alelda og er gjörónýt. Hún er af tegundinni John Deere og er rúmlega 10 ára gömul.