Á ránsfæti með fíkniefni í sokknum

Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina karlmann á þrítugsaldri sem farið hafði ránshendi um í Reykjanesbæ. Maðurinn játaði við yfirheyrslu að hafa farið inn í bílskúr þar sem hann stal rafmagnsvespu, fræsitönnum, PD-fjarstýringu, mótorhjólahjálmi og fleiru.

Þaðan lá leið mannsins yfir í Tölvulistann þar sem hann stal fartölvu. Enn hélt hann áfram för sinni og fór næst inn á Dominos-pítsastað þar sem hann stal úlpu, bakpoka og lyklum að bifreið. Hann fann svo út hvar bíllinn, sem lyklarnir gengu að, stóð og stal honum því næst. Númeraplöturnar tók hann síðan af bílnum þegar hann var kominn í Garðabæ, þar sem hann stal númeraplötum af annarri bifreið sem hann setti á bílinn.

Maðurinn játaði brot sín hjá lögreglu. Við öryggisleit á lögreglustöð reyndist hann vera með efni sem talið er vera kannabis í fórum sínum. Þá fundust einnig efni sem talin eru vera fíkniefni og talsverðir fjármunir í öðrum sokk hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert