Fékk opið beinbrot við að sækja hrífu

mbl.is/Hjörtur

Karlmaður í Njarðvík slasaðist þegar hann féll úr stiga í bílskúr sínum um helgina. Maðurinn hafði verið að sækja hrífu upp á milliloft þegar óhappið varð.

Við fallið hlaut hann opið beinbrot á ökla og var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi að því er segir í dagbók lögreglu á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert