Fimm ökumenn í vímu undir stýri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för fjögurra ökumanna í nótt sem eru grunaðir um akstur bifreiða undir áhrifum áfengis og fíkniefna og lögreglan á Akureyri stöðvaði einn í nótt sem er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Sá er einnig sviptur ökuréttindum.

Af þeim fjórum sem voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu reyndust þrír vera undir áhrifum fíkniefna en einn áfengis. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði einnig afskipti af fjórum einstaklingum í nótt sem voru með fíkniefni í fórum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert