Guðni Th. óskar Vilborgu Örnu til hamingju

Vilborg Arna í sínum þriðja Everest-leiðangri.
Vilborg Arna í sínum þriðja Everest-leiðangri. Ljósmynd/Vilborg Arna Gissurardóttir/Instagram

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendi Vilborgu Örnu Gissurardóttur í dag hamingjuóskir með að ná því takmarki að klífa hæsta tind heims á Everestfjalli fyrst íslenskra kvenna.

Í kveðju sinni segir forseti meðal annars „að með þessu mikla afreki hafi Vilborg Arna sýnt í verki hverju hægt sé að áorka með því að setja sér markmið og gefast ekki upp þótt á brattann sé að sækja. Staðfesta hennar og kraftur geti orðið öðrum fyrirmynd.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert