Kviknaði í húsi út frá flugeldi

Tilkynning barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan 18:00 um eld í íbúðarhúsi í Holtahverfi í Mosfellsbæ. Flugeldur hafði þar lent í þakskeggi og kviknaði eldur í því út frá honum.

Málið leit illa út samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu og var því talsverður viðbúnaður. Þegar á staðinn kom hafði íbúum tekist að slökkva eldinn. Slökkviliðsmenn gengu úr skugga um að engar glóðir væri að finna í þakskegginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert