Á stolnum bíl í Gnoðarvogi

Lögreglan handtók tvo rúmlega tvítuga menn í Gnoðarvoginum á fimmta tímanum í nótt en þeir voru á stolinni bifreið á bílastæði við götuna. Þrettán ára stúlka var með þeim í för og var henni komið til foreldra og barnavernd tilkynnt um atvikið.

Líkt og ítrekað hefur komið fram á mbl.is er lögregla með aukið eftirlit í hverfinu vegna endurtekinna þjófnaða, ofbeldis og annarra brota í Langholts-, Voga- og Laugarneshverfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert