Árekstur á Kringlumýrarbraut

Áreksturinn varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar.
Áreksturinn varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar. mbl.is/Hanna

Einn var fluttur á slysadeild eftir árekstur á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar um hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er þó talið að meiðsl viðkomandi séu minni háttar.

Slökkviliðsmenn ásamt lögreglu voru kallaðir á vettvanginn, en hreinsa þurfti upp olíu og flytja bílana í burtu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert