12.000 færri fá barnabætur

Leikskólabörn að leik. ASÍ mótmælir því að stjórnvöld dragi úr …
Leikskólabörn að leik. ASÍ mótmælir því að stjórnvöld dragi úr stuðningi við barnafjölskyldur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fjölskyldum sem fá barnabætur hefur fækkaði um tæplega 12.000  á árabilinu 2013-2016 og mun halda áfram að fækka á næstu árum, segir í fréttatilkynningu ASÍ. Bendir sambandið á að það hafi gagnrýnt áform stjórnvalda um að draga úr stuðningi við barnafjölskyldur í formi barnabóta.

Markmið stjórnvalda hafi um nokkurt skeið verið að „einfalda“ barnabótakerfið, með því að þrengja þann hóp sem kerfið nær til og beina barnabótum einkum til heimila með allra lægstu tekjurnar. Minni fjármunir hafi verið settir í málaflokkinn og barnabætur hafi lækkað að raungildi.

Tekjuskerðingarmörk hafi verið óbreytt í barnabótakerfinu á árunum 2013-2016, en skerðingarhlutfall tekna hafi verið aukið árið 2015 og í ár hafi skerðingarmörk verið hækkuð um 12,5%. Þar sem launavísitala hafi lækkað um tæpan þriðjung frá árinu 2013 sé ekki annað að sjá en að stefnan sé að draga enn frekar úr stuðningi við barnafjölskyldur. Þeim áformum mótmæli ASÍ harðlega.

„Stjórnvöld hafa gjarnan vísað til tillagna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um endurskoðun á barnabótakerfinu og ráðleggingar hans um einföldun á kerfinu. Þetta er afar villandi þar sem tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins byggðu á því að markmið stjórnvalda væri stuðningur til fátækra en ekki til að styðja almennt við barnafjölskyldur eða hvetja til barneigna,“ segir í tilkynningunni.

Markmið barnabóta víða í Evrópu sé að hvetja til barneigna, einkum í löndum þar sem fæðingartíðnin er lág, en þó einnig til að koma í veg fyrir fátækt barna.

Á Norðurlöndum og víða í Evrópu hafi ríkt mikil sátt um gildi stuðnings við barnafjölskyldur og á Norðurlöndunum séu barnabætur föst upphæð fyrir hvert á barn. Á Íslandi sé stuðningurinn háður fjölda og aldri barna, tekjum foreldra og hjúskaparstöðu.

„ASÍ vill að þróuninni verði snúið við og barnabætur lagaðar að norræna kerfinu þar sem barnabætur hafa það hlutverk að jafna lífskjör fólks með svipaðar tekjur en mismunandi framfærslubyrði.

Minnkandi stuðningur stjórnvalda til barnafjölskyldna er því risastórt skref aftur á bak. Staða ungs fólks, vaxandi kostnaður við nám, kostnaður við barneignir, daggæslu og lækkandi fæðingartíðni er sá veruleiki sem nota má til að rökstyðja aukin stuðning til barnafjölskyldna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert