Framkvæmdir á Reykjanesbraut

Malbikunarflokkur að vinna á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdir verða í dag við …
Malbikunarflokkur að vinna á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdir verða í dag við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krísuvíkurvegar í Hafnarfirði. mbl.is/Rósa Braga

Framkvæmdir verða í dag við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krísuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð verður því færð yfir á hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar og er leyfður umferðarhraði á vinnusvæðinu 50 km/klst.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu muni þurfa að að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert