Einn með allar tölur réttar

Einn var með allar tölurnar réttar í laugardagslottóinu í kvöld og fær hann í sinn hlut rúmlega 6,5 milljónir króna. Miðinn var í áskrift.

Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra 95.400 krónur. Einn miðanna er í áskrift en hinir voru keyptir hjá Olís v/Álfabakka í Reykjavík og Söluskála Stefáns Jónssonar á Fáskrúðsfirði.

Einn var með fjórar réttar tölur í Jókernum og fær hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn er í áskrift.

Tölur kvöldsins voru: 9-18-24-31-33. Bónustalan var 29.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert