Karlmaður var dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 23. júní, en hann er grunaður um tilraun til manndráps með því að hafa stungið annan mann með hníf í höfuðið. Kom til ryskinga milli mannanna þegar sá sem varð fyrir árásinni fór ásamt konu að sækja bíl sem konan hafði lánað meintum árásarmanni.
Atvikið átti sér stað 5. mars, en þetta er í fjórða skiptið sem maðurinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.
Samkvæmt dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn sem er grunaður um árásina hafi verið í annarlegu ástandi þegar lögreglan kom á staðinn, en þá var hinn maðurinn þegar farinn á slysadeild vegna áverkanna. Reyndust það vera alvarlegir stunguáverkar á höfði og slagæðarblæðing úr höfuðleðri. Samkvæmt bráðabirgðaáverkavottorði hafi tölvusneiðmynd sýnt áverka á höfuðkúpu sem hafi virst ná í gegnum fulla þykkt höfuðkúpunnar.
Við nánari skoðun hafi síðan komið í ljós að áverkinn hafi náð í gegnum beinþykktina en ekkert inn fyrir kúpuna sjálfa. Hafi það verið mat vakthafandi læknis á heila- og taugadeild LSH að ef eggvopnið hefði gengið inn í heilavefinn hefði ekki verið að sökum að spyrja og áverkinn hafi getað leitt til mikils varanlegs tjóns og jafnvel dauða.