Hundaeigandi sviptur dýrum sínum

Hundar verða að geta stólað á sína eigendur. Myndin er …
Hundar verða að geta stólað á sína eigendur. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Ómar

Matvælastofnun hefur tekið tvo hunda og átta hvolpa úr vörslu eiganda. Ástæða vörslusviptingar er óviðunandi aðbúnaður og umhirða, sinnuleysi og vanþekking til að halda dýr.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef MAST.

Þar segir ennfremur, að umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar á Suðvesturlandi hafi í vor borist ábending um tík á lausagangi. Hún hafi verið örmagna og við það að gjóta. Haft var upp á eiganda tíkurinnar sem hafði ekki gert neinar ráðstafanir þegar tíkin, sem var hvolpafull og komin að goti, hvarf frá heimili sínu. Eigandinn reyndist eiga aðra tík sem haldin var við óviðunandi aðbúnað og umhirðu. Að lokinni aðhlynningu tók Dýrahjálp við hundunum til að útvega þeim ný heimili. 

„Skv. 38. gr. laga um velferð dýra getur Matvælastofnun tekið dýr úr vörslu umráðamanns telji stofnunin að úrbætur þoli enga bið, hafi dýrið orðið fyrir varanlegum skaða sökum vanfóðrunar, harðýgi, slysa eða slæms aðbúnaðar. Matvælastofnun er heimilt að krefja umráðamann dýra um kostnað af þvingunaraðgerðum sbr. 40. gr. laganna,“ segir í tilkynningu MAST.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert