Lést í kjölfar umferðarslyss

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Karl á þrítugsaldri lést í kjölfar umferðarslyss sem varð í Álfhellu í Hafnarfirði síðdegis síðastliðinn miðvikudag, 24. maí.

Þar rákust saman bifhjól og pallbíll og var ökumaður bifhjólsins fluttur á sjúkrahús, en hann lést þar tveimur dögum síðar, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert