Breytir ekki kortavef Já.is

Birtingaform upplýsinga sem er í lagi.
Birtingaform upplýsinga sem er í lagi. Mynd/Já.is

Ákvörðun Persónuverndar um að birting mynda af heimilum einstaklinga á vefsíðunni Já.is samræmist ekki persónuverndarlögum snýr aðeins að birtingarformi myndanna. Unnið er að því að breyta birtingu í samræmi við úrskurðinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Já.is.

Eins og mbl.is fjallaði um í dag telur Persónuvernd myndbirtinguna ekki samræmast lögunum, en um er að ræða myndir af heimilum sem birtast þegar leitað er eftir upplýsingum um fólk á síðunni.

Í tilkynningunni frá Já kemur fram að frá 2013 hafi Já birt 360° götumyndir á kortavef Já.is og hafi fyrirtækið ávallt fylgt ákvörðunum og tilmælum Persónuverndar í því verkefni. Úrskurður Persónuverndar sem kunngerður var í gær segi aðeins til um að birtingar á götumyndum séu ekki leyfilegar á sömu síðu og upplýsingar um heimili einstaklinga.

„Um er að ræða birtingarform myndanna og hefur fyrirtækið hafið vinnu nú þegar við að breyta birtingu og verkferlum í samræmi við úrskurð Persónuverndar,“ segir í tilkynningunni.

Götumyndirnar verða enn þá aðgengilegar á 360° kortavef Já.is og sé því einungis verið að breyta hvernig þær birtast.

Á myndum með fréttinni má sjá muninn á þeim birtingum sem eru í lagi og þeim sem þarfnast sérstaks samþykkis.

Myndbirting sem þarfnast sérstaks upplýsts samþykkis.
Myndbirting sem þarfnast sérstaks upplýsts samþykkis. Mynd/Já.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert